Lág flugverð til Thailands og Bangkok

Bangkok er ekki hægt að meta út frá stærðinni heldur út frá áhugaverðum stöðum og iðandi mannlífi, sem er  nauðsynlegt til þess að skilja Thailand sem heild. Þú færð meira út úr dvölinni í Thailandi, ef þú eyðir fyrstu dögunum í  Bangkok. Borgin er bæði stórkostleg og framandi, algjört gósenland fyrir verslunarunnendur og hér er fullt af áhugaverðum stöðum. Í borginni finnur þú einnig fallega gullprýdd  hof sem standa innan um áhugaverða stórmarkaði og háhýsi úr gleri og stáli.
Frá þéttsettum götueldhúsum blandast hiti og ilmur mikilli litadýrð og fjölbreyttum hljóðum sem er alveg stórkostleg upplifun. Lífið í kringum Chao Phaya fljótið og litlu síkin er mjög skemmtilegt að upplifa. Þið getið farið í siglingu eða gengið meðfram síkjunum og upplifað daglegt líf thailendinganna sem lifa í litlum tréhúsum með bárujárnsklæddum þökum. Það er í raun enginn miðbær í Bangkok en margir benda á Grand Palace, gamla konungs svæðið sem upprunalega miðbæinn. En maður verður samt að ferðast aðeins um borgina ef maður vill upplifa og sjá hina 220 ára gömlu sögu og áhugaverða staði eins og:

  • Wat Po, hofið þar sem þriðja lengsta Buddha likneski er þakið 24 karata gullblöðum
  • Wat Traimit, sem er minna hof með Buddha líkneski í 18 karata gulli sem vegur 5,5 tonn
  • Vimanmek höllin er heimsins stærsta tekktré höll  
  • Marmara hofið, sem er byggt úr sérstökum marmara frá Italíu, af afa núverandi konungs

Að ferðast um Bangkok
Þar sem umferðin er eitt af stærstu vandamálum Bangkoks þá er nauðsynlegt að þekkja til hinna ýmsu ferðamöguleika.  Umferðin er mjög mikil  milli kl. 08.00 – 10.00 á morgnana og frá kl. 16.00 – 21.00. En það er ódýrt að ferðast um borgina og oft er hægt að velja á milli fleiri en eins ferðamöguleika til að komast á milli staða.

Leigubílar:
Það er þægilegt að ferðast um borgina með leigubílum. Þeir eru ódýrir og loftkælingar í bílunum gera það að verkum að þeir eru þægilegt athvarf frá hinum mikla hita sem er oft í borginni. Rétt er þó að hafa í huga að það getur tekið langan tíma að komast á milli staða í leigubílum á mesta annatímanum. Leigubílarnir eru með gjaldmæli en ef bílstjórinn kveikir ekki á mælinum eða vill aka fyrir fast verð, farið þá fram á að hann noti mælinn (taximeter) eða finnið annan bíl. Almennt eru leigubílstjórar hjálpsamir við ferðamenn en öruggast er að hafa í huga hefðbundnar varúðarreglur þegar ferðast er um Bangkok eins og aðrar stórborgir. 

Tuk-Tuk:
Það er mjög litrík upplifun að keyra um götur Bangkoks í Tuk-Tuk. En oft getur það verið dýrara og semja þarf um verðið þar sem hér er enginn gjaldmælir. Þetta er upplifun en ekki eins þægilegt og að vera í loftkældum leigubílum og oft er reynt að svindla á ferðamönnum sem ferðast með Tuk-Tuk. Munið bara að semja fyrirfram um ákv. verð og samþykkið ekki (nema þið sjálf viljið prófa einu sinni svona borgar upplifun) ef ökumaðurinn býður ykkur kostakjör og vill sýna ykkur alla borgina fyrir lítinn pening (oftast fá ökumennirnir greitt fyrir að fara með ferðamenn í ákveðnar skartgripaverslanir og til klæðskera).

Taxabátar (Chao Phraya River Express):
Ef maður býr nálægt Chao Phraya fljótinu getur verið þægilegt að ferðast með “taxa” bátunum. Bátarnir sigla eftir ákv. leiðum og maður hoppar um borð og af aftur á þeim stað sem maður ætlar til alveg eins og í strætó. Þetta er ódýr og þægilegur ferðamáti en nær aðeins yfir ákv. svæði í Bangkok.

Strætó:
Fyrir ferðamenn sem þekkja lítið til í Bangkok getur verið erfitt að ferðast með strætó og hafa yfirsýn yfir ferðirnar. Hér getur einnig verið vandamál að ekki er alveg hægt að reikna með að vagninn komi á réttum tíma vegna umferðar. Þessi ferðamáti er mjög ódýr.

BTS Sky Train:
Þessi ferðamáti er ódýr, fjótlegur og einfaldur. „Sky Train“ fer yfir stóran hluta borgarinnar. Á öllum BTS stöðum getur maður fengið kort yfir leiðirnar og það er góð hugmynd að nota svolítinn tíma í að setja sig inn í kerfið. 

MRT (Metro):
„Metro“ kerfið í Bangkok fer einnig yfir stóran hluta borgarinnar og einnig þau svæði sem BTS „Sky Train“ nær ekki til. Þessi ferðamáti er einnig ódýr, öruggur og það er þægilegt að fara á milli með lestinni.

Verslun - Shopping:
Í stórmörkuðum og gríðalega stórum  verslunarmiðstöðum eru föst verð á vörunum. Maður getur þó fengið afslátt á sumum vörum ef borgað er með peningum.  Á mörkuðum, í litlum verslunum og hjá götusölum er eðlilegt ad semja um verðið (sem nú þegar er gott). Þad er mögulegt að spara allt að helming af upprunalegu verði vörunnar ef maður er duglegur að semja um verð og götusalinn er í góðu skapi. Það er mikið af eftirlíkingu á vörum í Thaílandi (og þá sérstaklega í Bangkok). Þar er hægt að finna mjög góð verð t.d. á tölvum og tölvubúnaði. Í Patong (sky train stoppistöð/lestarstöð Sala Daeng) og á Sukhumvit Road (sky train stoppistöð/lestarstöð Nana eða Asoke) er einnig mikið af góðum tilboðum  t.d. á  veskjum, töskum, bolum og úrum. Það getur einnig borgað sig að kíkja við hjá thailenskum klæðskera og eru margir klæðskerar á Sukhumvit Road

Verslunar miðstöðvar – “Shopping malls”:
Margar verslunar miðstöðum eru nálægt „Sky Train“ stöðunum, sérstaklega við Siam og Chit Loms  stöðvarnar.

Markaðir:
Það er mikill fjöldi markaða í Bangkok. En markaðirnir Weekend markaðurinn og Saua Lum Night Basar dekka flest allar kaupþarfir.

Weekendmarkedet (Jatujak):
Markaðurinn sem er yfir öllum öðrum er weekend markaðurinn sem Thailendingar kalla Jatujak markaðinn eða JJ markaðinn. Markaðurinn er aðeins opinn um helgar og er þess verður að heimsækja. Hér er mjög fjölbreytt vöruúrval á góðu verði og skrautlegt mannlíf. Markaðurinn er við endastöð BTS, Mo Chit og við lestarstöðvarnar Kamphaeng Phet og Chatuchak Park.

Suan Lum Night Bazaar:
Þessi markaður er opinn alla daga frá kl 17:00 til miðnættis en hér er aðalega að finna föt, minnjagripi og hluti fyrir heimilið. Til að komast á markaðinn er auðveldast er að taka MTR „Metoinn“ á Lumphini stöðina.

Hverfin í Bangkok:
Hverfin í Bangkok eru með hver með sín sérkenni og þess vegna er gott að hafa undirstöðu þekkingu um borgina til að fá sem mest út úr ferðinni. Hér fyrir neðan er stutt lýsing af mið svæðum borgarinnar.

Sukhumwit:
Sukhumwit er eitt af miðsvæðunum í Bangkok, sem oft er talið til verlsunarsvæða. Það er hér sem erlent verslunarfólk býr og starfar. Upphafið á Sukhumwit breiðstrætinu minnir þó meira á einhvers konar „red light district“ með marga veitingastaði og bari. Hér er einnig að finna lítil þjóðflokka hverfi eins og hið japanska. Aðeins lengra frá Sukhumwit eru íbúðir í dýrari kantinum auk verslana, veitingastaða og næturklúbba sem höfða meira til auðugra íbúa Bangkoks

Siam:
Siam er svæðið þar sem mikill hluti íbúa Bangkoks hittist í frítímanum. Svæðið er yfirfullt af veitingastðöðum, bíósölum, verslunum og verslunarmiðstöðum. Við Siam Square er mikið af litlum hönnunar verslunum, hárgreiðslustofum og veitingastöðum en verslunarmiðstöðvarnar, Siam Discovery, Siam Center og Siam Paragorn eru við götuna Rama1.

Khao San Road:
Khao San Road og svæðið í kring eru eitt þekktasta svæði í Bangkok. Það erhér sem bakpoka ferðalangar frá öllum heiminum halda til. Hér eru ódýr hótel, veitingastaðir, barir og verslanir/básar ásamt alþjóða- og frjálslegu andrúmslofti. Khao San Road er ótrúlega litríkt svæði sem gaman er að heimsækja.

Silom (Pat Pong):
Silom  er þekktast fyrir 2 litlar götur, Pat Pong 1 og Pat Pong 2. Þessar götur eru þekktar og umtalaðar fyrir go-go bari, og á sínum tíma dró svæðið að sér mikinn kynlífsiðnað.Þó svo að Pat Pong sé ennþá  tákn  „rauða ljóssins“ þá hefur svæðið smán saman orðið að almennum ferðamanna stað, vegna hinna mörgu ferðamanna bása á svæðinu og hinu litríka næturlífi. Silom býður þó einnig uppá Lumphini Park sem er grænt svæði í miðri stórborgarinni ásamt Suan Lum Night Bazar. Þar fyrir utan er Silom verslunarsvæði með tilkomumiklum stórhýsum.

Chinatown (Yaowarat):
Chinatown hefur alla þá eiginleika sem “china town” á að hafa. Hér eru kínverskir veitingastaðir, kínversk hof, margir gullsmiðir,sölumenn sem selja verndargripi, litlar fjölskyldu reknar verslanir, neonljós í öllum litum og síðast en ekki síst afkomendur af öllum þeim þúsundum kínverja sem flutst hafa til Thailands.

Bangkok forni hlutin (Rattanakosin):
Þetta svæði er staðsett með fram Chao Phraya fljótinu aðeins fyrir norðan Chinatown. Hér er að finna tilkomumestu hof borgarinnar ásamt áhugaverðum og sögulegum stöðum. Þekktast er Grand Palace og Wat Phra Kaew, en á þessu svæði er einnig aðfinna mörg önnur hof eins og Wat Pho og Wat Mahathat.

Ticket2Travel.is ber saman öll flugfélög sem fljúga til Bankok, skammstöfun fyrir Bangkok er BKK og það er hægt að kaupa einn flugmiða alla leið frá Keflavík.

Ticket2Travel.is selur eingöngu flugmiða þar sem töskur eru inn ritaðar alla leið, sama hvað það eru margar millilendingar.

Allir flugvellir eru með lámarks tengitíma þar sem flugvöllurinn og þjónustufyrirtæki ábyrgast það gagnvart flugfélögum að farangur og fólk komist á milli flugvéla.

Flugbókunarkerfið okkar hjá Ticket2Travel.is er stillt þannig að það koma ekki upp flug sem eru innan við lámarks tengitíma hvers flugvallar fyrir sig, þess vegna erum við 100% neytendavæn flugbókunar síða.

Ef það verða seinkanir á flugi þannig að farþegar missa af tengiflugi, sér viðkomandi flugfélag um gesti okkar þeim að kostnaðarlausu. Bóka þá í næsta mögulega flug en ef það er ekki fyrr en daginn eftir sér flugfélagið gestum okkar fyrir gistingu, fæði og keyrslu frá flugvelli á hótel og í flug daginn eftir.

Tengitímar á flugvöllum geta verið mjög misjafnir, dæmi í Kastrup í Kaupmannahöfn er lámarks tengitími 25 mín, í London innan sama Terminal er hann 55 mín, en í Keflavík er hann 45 mín.

 

shade